Heimili verktakans

Rektor heldur utan um fyrirtækið þitt og leiðir þig í gegnum farsælan rekstur

Hannað fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn

Rektor app screenshot

Markhópur

Hannað fyrir þá sem vinna með höndunum

Ef þú stofnaðir fyrirtæki vegna þess að þú varst góður í þínu fagi, en þér finnst þú nú vera að drukkna í rekstrinum – þá er Rektor fyrir þig.

Tilvalið fyrir fyrirtæki með 1–50 starfsmenn

Rafvirkjar🔧Pípulagningamenn🔨Smiðir🌿Garðaþjónusta🏗️Jarðvinna🧹Þrifafyrirtæki🛠️Viðhaldsfyrirtæki⚙️Þjónustufyrirtæki

Hvernig höldum við utan um
reksturinn?

Tilboð

Hættu að eyða kvöldunum í tilboðsgerð

Sendu faglegt tilboð á nokkrum mínútum, úr símanum eða tölvunni.

Verkkaupi fær tilboðið í tölvupósti og getur samþykkt með einum smelli. Samþykkt tilboð fer beint inn í tímalínu Rektors — tilbúið til skipulagningar.

Fagleg tilboðsgerð

Tímalína

Haltu utan um allt ferlið á einum stað

Hvert samþykkt tilboð lendir sjálfkrafa á lifandi tímalínu. Þú sérð hvaða verk eru í gangi, hvað er framundan og hvað er á eftir áætlun — allt á einum stað.

Færðu verk á milli daga þegar áætlanir breytast. Rektor lætur vita þegar verk fer fram úr áætlun svo þú getir brugðist við áður en það kostar þig.

Jan
Feb
Mar
Apr
May
Baðherbergi - Hús A(0%)
Leiksvæði - Suðurgarður(0%)
Rafmagn - Sundlaug(0%)
Brunaúttekt - Skóli(0%)
Þakviðgerð - Aðalbygging(0%)
Today

Stimpilklukka

Geofence sjálfvirk tímaskráning

Ónákvæm tímaskráning er dýr og enginn vill þurfa að fylgjast handvirkt með tímum starfsmanna. Rektor notar 200m geofence í kringum hvert verk til að skrá tíma sjálfkrafa.

Rektor minnir starfsmenn á að stimpla sig inn og út, skráir staðsetningu við hverja stimplun og lætur þig vita um skráningar dagsins.

Map
200m
!

Jón fór snemma

Fór af vinnusvæði — 11:43

08:00

Rauntíma yfirlit

Rauntíma yfirsýn

Sjáðu stöðu hvers verkefnis, starfsmanns og tilboðs á einum stað. Rektor fylgist með rekstrinum og lætur þig vita þegar eitthvað þarfnast athygli, meðal annars:

  • Verkefni fer út fyrir áætlun
  • Verkefni er lokið en reikningur hefur ekki verið sendur
FjárhagsyfirlitÞessi vika

Tekjur

1.240.000

+12%

Útgjöld

820.000

+3%

Hagnaður

420.000

+18%
TekjurÚtgjöldHagnaður
Verkið á Hæðasmára er 15% fram úr áætlun
Ask Rektor

Raddskipun

Rektor skilur þig betur en þú heldur

Þú þarft ekki að læra á Rektor — segðu bara hvað þú þarft og Rektor sér um það. Hvar sem þú ert — á verkstað, á ferðinni eða á skrifstofunni.

Hvort sem þú ert að senda tilboð eða aukaverk á verkefni. Segðu einfaldlega: "Rektor, bættu við 2 tímum í málun á Hæðasmára sem aukaverk" og það skráist sjálfkrafa inn.

Logo
Rektor
Tilbúinn

Segðu eitthvað...

Hagnaður og stýring

Haltu rekstrinum heilbrigðum með þínum eigin gögnum

Kostnaður breytist stöðugt — laun hækka og efni verður dýrara. Tilboð sem var arðbært fyrir þremur mánuðum er það kannski ekki í dag.

Rektor sýnir þér áætlaðan hagnað á hverju tilboði áður en þú sendir það. Kerfið ber saman við síðustu sambærileg verk og leggur til verðbreytingar svo framlegðin haldist heilbrigð.

Hagnaður og stýring

Aukaverk

Aukaverk eru ekki gjöf

Aukaverk sem ekki eru skráð gleymast — eða enn verra, verður ágreiningur um þau. Þú vinnur verkið en verkkaupi man ekki eftir að hafa samþykkt það.

Með Rektor skráir þú aukaverk á staðnum og verkkaupi samþykkir rafrænt. Allt er skjalfest og bætist sjálfkrafa við verkið.

Aukaverksbeiðnir

60%

fyrirtækja á Íslandi fara í gjaldþrot innan 5 ára

1.100+

vinnustundir tapast á ári hjá 10 manna fyrirtæki vegna ónákvæmra tímaskráninga

6,6m

tapast á hverju ári vegna ofskráðra tíma

15 mín

sparnaður á dag á mann skilar milljónum á ári

Rektor Appið

Framlenging skrifstofunnar út á verkstað

Appið sér um gagnasöfnun svo þú getur stjórnað fyrirtækinu þínu út frá rauntölum

📍

GPS & staðsetningartengd vinnuskráning

Innstimplun er aðeins möguleg innan skilgreinds svæðis. Ef starfsmaður fer af svæðinu sendir appið sjálfkrafa áminningu. Þú borgar aldrei fyrir gleymdar útskráningar eða tíma sem ekki er varinn á verkstað.

📏

Einingaskráning

Starfsmenn skrá unnar einingar (t.d. '20m² málaðir') og kerfið reiknar framleiðni sjálfkrafa.

📸

Myndir af vinnustað

Starfsmenn taka myndir beint í appinu sem eru sjálfkrafa tengdar við verkefnið í Rektor

🌎

Yfirsýn verkkaupa

Verkkaupi getur fylgst með framvindu verksins í rauntíma á meðan það er unnið.

⚠️

Viðvörunarkerfi

Rektor varar þig við þegar kostnaður fer fram úr framgangi — áður en það er of seint.

Í boði á
ÍslenskaÍslenskaEnglishEnglishNorskNorskPolskiPolskiРусскийРусский

Vandamálið

Flest fyrirtæki fara ekki í gjaldþort vegna skorts á fagmennsku

Heldur vegna skorts á yfirsýn yfir reksturinn og að hlutir sem eru einfaldir í byrjun flækjast eftir því sem velta og verkefnum fjölgar. Vandamálin birtast þegar reksturinn flækist.

FAQ

Algengar spurningar