Heimili verktakans

Rektor heldur utan um fyrirtækið þitt og leiðir þig í gegnum farsælan rekstur

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn

Verkefni í gangi
Viðhald utanhúss – Álfheimar 12
Framvinda verkefnis
58%
Tekjur2.436.000
Kostnaður1.512.000
Hagnaður924.000
Stimplaðir inn
4 starfsmenneru stimplaðir inn
8 starfsmenneru á vakt í dag

Fimmtudagur, 24 sept.

Góðan daginn Mantas!

MP
Velja annað verkefni

Verkefnin þín

Viðhald utanhúss – Álfheimar 12

Álfheimar 12, 104 Reykjavík

Stimpla inn

Pallasmíði – Hraunbær 8

Hraunbær 8, 110 Reykjavík

Stimpla inn

Leiksvæði – Suðurgarður

Suðurgarður, 200 Kópavogur

Stimpla inn
HeimStimplanirFríStillingar

Yfirfara vinnustundir

Heildarvinnustundir

0h 0m

fim., 24 sept. · 07:51 – 07:51

1 stimplun

Verkþættir

Lokið3 / 5

Vinnupallar settir upp
Háþrýstiþvottur og múrviðgerðir
Sílanböðun útveggja

Athugasemdir· valfrjálst

Bæta við athugasemd við þessa vakt…
Síminn

Innstimplun: Stimplaðu Mantas inn í símanum

Markhópur

Hannað fyrir þá sem vinna með höndunum

Ef þú stofnaðir fyrirtæki vegna þess að þú varst góður í þínu fagi, en þér finnst þú nú vera að drukkna í rekstrinum – þá er Rektor fyrir þig.

Tilvalið fyrir fyrirtæki með 1–50 starfsmenn

RafvirkjarPípulagningamennSmiðirGarðaþjónustaJarðvinnaÞrifafyrirtækiViðhaldsfyrirtækiÞjónustufyrirtæki

Hvernig höldum við utan um
reksturinn?

  1. Tilboð

    Hættu að eyða kvöldunum í tilboðsgerð

    Tilboðið er tilbúið á nokkrum mínútum og þú getur gert það í tölvunni eða í símanum.

    Viðskiptavinurinn fær tilboðið í tölvupósti og samþykkir það með einum smelli. Þá fer verkið beint á tímalínuna þar sem þú finnur því stað.

    Skoða meira: Fagleg tilboðsgerð
  2. Tímalína

    Haltu utan um allt ferlið á einum stað

    Hvert samþykkt tilboð fer á tímalínuna. Ef það hefur enga dagsetningu bíður það í listanum yfir óskipulögð tilboð þar til þú dregur það inn á réttan dag.

    Þegar áætlanir breytast færirðu verkið á annan dag. Verk sem eru komin fram úr áætlun verða rauð á tímalínunni og birtast í samantekt dagsins, svo þú getur brugðist við í tæka tíð.

    Skoða meira: Lifandi tímalína
  3. Stimpilklukka

    Stimplun sem gleymist ekki

    Gleymd stimplun kostar peninga og enginn nennir að eltast við tíma starfsmanna eftir á. Rektor setur 200 metra verkgirðingu um hvert verk og minnir starfsfólkið á að stimpla sig inn og út. Ef þú vilt getur Rektor líka stimplað það sjálfkrafa inn við komu.

    Skoða meira: GPS-stimpilklukka
  4. Rauntímayfirlit

    Skýrslurnar sem reksturinn þarf

    Verkefnaskýrsla, starfsmannaskýrsla og launaskýrsla byggja allar á sömu stimplunum og einingum, svo tölunum ber alltaf saman.

    • Verkefnaskýrsla: raun og áætlun hlið við hlið, framlegð og unnið verðmæti á hverju verki
    • Starfsmannaskýrsla: tímar, yfirvinna og verðmæti hvers starfsmanns á tímabili
    • Launaskýrsla: venjulegar stundir, yfirvinna, launað frí og heildarlaun fyrir launatímabilið
    Skoða meira: Arðsemisskýrslur verkefna
  5. Gervigreind

    Spyrðu Rektor um reksturinn

    Hvernig gengur verkið á Hæðasmára? Hverjir eru mættir í dag? Svörin við svona spurningum eru dreifð um skýrslur og töflur, en Rektor finnur þau á nokkrum sekúndum.

    Þú getur líka beðið hann að búa til tilboð, skrá aukaverk eða bóka skoðun. Hann sýnir þér fyrst hvað hann ætlar að gera og ekkert breytist fyrr en þú staðfestir.

    Skoða meira: Rektor AI

Rektor Appið

Framlenging skrifstofunnar út á verkstað

Appið sér um gagnasöfnun svo þú getir stjórnað fyrirtækinu þínu út frá rauntölum

GPS og staðsetningartengd vinnuskráning

Innstimplun er aðeins möguleg innan skilgreinds svæðis. Ef starfsmaður fer af svæðinu sendir appið sjálfkrafa áminningu. Þú borgar aldrei fyrir gleymdar útstimplanir eða tíma sem ekki er varinn á verkstað.

Einingaskráning

Starfsmenn skrá unnar einingar (t.d. „20 m² málaðir“) og kerfið reiknar framleiðni sjálfkrafa.

Myndir af vinnustað

Starfsmenn taka myndir í appinu sem eru sjálfkrafa tengdar við verkefnið í Rektor

Yfirsýn verkkaupa

Verkkaupi getur fylgst með framvindu verksins í rauntíma á meðan það er unnið.

Viðvörunarkerfi

Rektor varar þig við þegar kostnaður fer fram úr áætlun — áður en það er of seint.

Í boði á
ÍslenskuEnglishNorskPolskiLietuviųУкраїнськаРусскийEspañol

Vandamálið

Flest fyrirtæki fara ekki í gjaldþrot vegna skorts á fagmennsku

Heldur vegna skorts á yfirsýn yfir reksturinn og að hlutir sem eru einfaldir í byrjun flækjast eftir því sem veltan eykst og verkefnum fjölgar. Vandamálin birtast þegar reksturinn flækist.

60%

fyrirtækja á Íslandi fara í gjaldþrot innan 5 ára

1.100+

vinnustundir tapast á ári hjá 10 manna fyrirtæki vegna ónákvæmra tímaskráninga

6,6m

tapast á hverju ári vegna ofskráðra tíma

15 mín

sparnaður á dag á mann skilar milljónum á ári

Náðu stjórn á rekstrinum

Prófaðu Rektor ókeypis og sjáðu raunverulegan hagnað af hverju verki.

14 dagar frítt · Ekkert greiðslukort · Fyrir verktaka með 1–50 starfsmenn

FAQ

Algengar spurningar

Hvað er Rektor?

Rektor er rekstrarkerfi fyrir verktaka og þjónustufyrirtæki með 1–50 starfsmenn. Það tengir saman tilboð, áætlanir, tímaskráningar og kostnað í eitt kerfi – svo þú veist alltaf hvort þú ert að græða á hverju verkefni, í rauntíma.

Hvers vegna myndi ég vilja nota Rektor?

Vegna þess að þú vilt vita raunverulegan hagnað á hverju verkefni áður en það er of seint. Þú verðleggur einingar út frá gögnum, ekki tilfinningum. Starfsmenn þínir skrá tíma og þú sérð strax hvernig dagurinn gekk. Rektor gefur þér rauntímayfirsýn svo þú getir gripið inn í áður en smámál verða að vandamálum.

Er auðvelt að nota Rektor?

Þú þarft ekki að læra á Rektor — þú getur bara talað við hann. Lýstu því sem þú þarft og hann sér um rest.

Hvernig byrja ég?

Ef þú notar DK eða Payday fyrir bókhaldið getur þú skráð þig og byrjað 14 daga ókeypis reynslutíma strax. Ef þú notar annað kerfi getur þú bókað fund með okkur og við hjálpum teyminu þínu að hefja notkun.

Get ég fengið aðstoð?

Við hjálpum þér með uppsetningu og áframhaldandi stuðning. Við erum á Íslandi og þekkjum verktakamarkaðinn.

Er kerfið í virkri þróun?

Rektor er í virkri þróun byggðri á endurgjöf frá íslenskum verktökum. Við gefum reglulega út uppfærslur og bætum stöðugt við eiginleikum sem verktakar þurfa raunverulega á að halda.

Fylgist Rektor með starfsmönnum mínum utan vinnu?

Nei. Rektor athugar einungis hvort starfsmenn séu staddir innan við 200 metra radíus frá verkstað. Það er engin GPS-staðsetning utan afmarkaða svæðisins, nema hvað staðsetning við inn- og útstimplun er skráð. Persónuvernd starfsmanna er að fullu tryggð.

Hvaða tungumál styður appið?

Stjórnborðið er á íslensku, ensku, norsku, pólsku og rússnesku. Farsímaappið er á íslensku, ensku, norsku, pólsku, rússnesku, litháísku, úkraínsku og spænsku.

Fyrir hverja er Rektor hannað?

Rektor er hannað fyrir verktaka og þjónustufyrirtæki með 1–50 starfsmenn — rafvirkja, pípara, smiði, þrifafólk og svipaðar greinar. Ef þú stofnaðir fyrirtækið þitt vegna þess að þú varst góður í þinni iðn en eyðir nú of miklum tíma í stjórnun og rekstur, þá er Rektor fyrir þig.

Hvað kostar Rektor?

Verðið fer eftir fjölda starfsmanna: frá 19.900 kr. á mánuði fyrir 1–4 starfsmenn upp í 29.900 kr. fyrir 11–20. Allir eiginleikar eru innifaldir í öllum leiðum og fyrstu 14 dagarnir eru ókeypis. Stærri fyrirtæki fá sérsniðið verð.

Virkar Rektor ef ég nota hvorki DK né Payday?

Já. Þú getur búið til einingarnar í Rektor eða flutt þær inn úr Excel og gefið reikningana út þaðan. Tengingin við DK og Payday sparar tvískráningu en er ekki skilyrði.

Hversu langan tíma tekur að byrja?

Flestir senda fyrsta tilboðið samdægurs. Uppsetningin er stutt og þú getur sleppt henni og klárað síðar.

Hvað sér starfsmaðurinn og hvað sér stjórinn?

Starfsmenn nota aðeins appið: stimpla inn og út, skrá framvindu og sækja um frí. Stjórar sjá sín verkefni, samþykkja frí og bæta við aukaverkum en sjá engin verð eða laun annarra. Eigendur og kerfisstjórar sjá allt.

Þarf ég alltaf að senda tilboð?

Nei. Ef verkið er þegar samið, innri vinna eða reikningsvinna stofnar þú verkefnið beint. Það er samþykkt strax, viðskiptavinurinn fær engan tölvupóst og starfsfólkið sér það í appinu um leið. Tilboð er fyrir verk sem viðskiptavinurinn á að yfirfara og samþykkja.

Hver á gögnin og hvað gerist ef ég hætti?

Þú átt gögnin þín. Þú getur sótt stimplanir í CSV og verkdagbækur í PDF hvenær sem er. Áskriftin er greidd mánaðarlega og þú getur sagt henni upp hvenær sem er.